Óvissuferðir innanlands. Hér viljum við sýna það sem fallega landið okkar hefur upp á að bjóða og það er svo sannarlega skemmtilegt að njóta þess í góðum hópi samstarfsfélaga sinna. Hópferðin getur verið hálfsdagsferð eftir vinnu eða heill dagur af ævintýrum – og það má fara í hvaða átt sem er frá Reykjavík.
Óvissuferðir innanlands, þær þurfa ekki alltaf að vera í óvissu og stundum vita allir hvert ferðinni er haldið en þetta orð óvissuferð hefur einhvernvegin fests við þessar ferðir útá land.
Ferðirnar okkar eru sérstakar hvort sem það eru hefðbundnar ferðir eða óvissuferðir þar sem þátttakendur vita raunverulega ekkert hvert farið verður né hvað á að gera. Ferðirnar eru undirbúnar í samráði við fulltrúa viðkomandi fyrirtækis og óvissuferðirnar stundum í fullkominni leynd.
Ísland hefur uppá svo ótrúlega margt að bjóða og maður eiginlega áttar sig ekki á því fyrr en maður fer að grúska í því. Gagnagrunnurinn okkar er svakalega stór allt frá því að knúsa og klappa geitum uppí það að heimsækja litla eyju í einkaeigu og snæða hádegisverð í ótrúlegri náttúru eða fara á ævintýralega fjórhjólaferð um fáfarnar slóðir.
Við leggjum okkur fram við skipulagningu hvers viðburðar og viljum helst kynnast viðkomandi hópi vel; hvernig hann er samsettur og hverskonar fólk er að fara út í náttúruna með okkur til að geta sérsniðið ferðina fyrir hópinn sem best.
Við höfum gríðalega mikla reynslu og virkilega góð tengsl við alla helstu söluaðila hótela, afþreyingar og öllu því sem þér dettur í hug. Við höfum í yfir 20 ár þjónustað erlenda ferðamenn sem hingað koma til lands og gerum það undir merkjum Eskimos.